Davíð Máni gefur út sína fyrstu EP plötu
20.05.2020
Davíð Máni gefur út sína fyrstu EP plötu
Davíð Máni er gítarnemandi í Skapandi Tónlist, og er að ljúka sínu öðru ári í deildinni.
Tónlistarverkefni Davíðs Mána í vetur er EP plata, og er hún nú komin út. Platan ber nafnið Miomantis, og er það líka listamannsnafnið sem Davíð Máni notar í verkefnið. Platan er instrumental plata þar sem gítarinn er í aðalhlutverki.
Davíð spilar á alla gítara á plötunni, en honum til aðstoðar eru Zophonías Tumi sem spilar á bassa og trommur, og Sveinn sem spilar á trommur í laginu Smiled Formed Muzzle.
Davíð sjá svo að mestu sjálfur um upptökur, hljóðblöndun og masteringu.
Hægt er að hlusta á plötuna á helstu streymisveitum. Hér er hún t.d. á Spotify:
Lokalag plötunnar, Fool, er svo komið á spilunarlista Skapandi Tónlistar