Fara í efni

Dagur Tónlistarskólanna!

Dagur Tónlistarskólanna!

Í tilefni af degi tónlistarskólanna verður Tónlistarskólinn á Akureyri með opið hús í Hofi laugardaginn 26. febrúar. Boðið verður upp á brot af því besta sem á sér stað innan veggja skólans og er markmiðið að aðstandendur, nemendur,
kennarar og allir þeir sem
hafa áhuga á starfinu geti
átt ánægjulega stund saman,
sér að kostnaðarlausu. 

Dagurinn er tilvalið tækifæri
fyrir þá sem hafa áhuga
á námi við skólann til að
kynna sér hvað stendur til boða.


Dagskrá: 

09:45 - Marimbana í Hamragili 
10:00 - Hvaða hljóðfæri er nú þetta??? - Hljóðfærakynning í Hamraborg 
10:45 - Spoogie Boogie og Marimbana sveitir Ludvigs Forberg í Hamragili 
11:00 - Klassískir tónleikar í Hömrum 
12:45 - Tónæði í Hamragili 
13:00 - Samspilstónleikar í Hamraborg 
13:45 - Suzukikrílatónleikar í Hamragili 
14:00 - Ritmískir tónleikar í Hömrum 
14:45 - Söngtónleikar Margotar Kiis í Hamragili 
15:00 - Hljómsveitartónleikar í Hamraborg - Sinfóníuhljómsveit, Big Band og Tangóband skólans leika 

Stofur verða opnar fyrir gesti og gangandi frá kl. 10:00 til 13:00 og býður veitingastaðurinn 1862 kaffi og Köku Dags Tónlistarskólanna á aðeins 890 krónur og barnaköku og Svala á aðeins 490 krónur. 

 Allir velkomnir. 

 Kærar kveðjur úr Tónlistarskólanum þínum :)