Dagur Tónlistarskólanna
08.02.2021
Dagur Tónlistarskólanna
DAGUR TÓNLISTARSKÓLANNA
Blásarasveitir, takk fyrir spilið! Og nemendur skólans, öll með tölu, bravó og áfram með fjörið!
Sunnudaginn 7. febrúar var haldið upp á dag tónlistarskólanna um allt land. Þar sem ekki er unnt að hóa saman fólki til að spila, hlusta og prófa hljóðfæri í ár hefur tónó leitað annarra leiða til að halda daginn hátíðlegan. Fyrsta uppákoman var innslag í föstudagsþætti N4 þann 5. febrúar. Þær Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir og Sóley Björk Einarsdóttir mættu til Vilhjálms Bragasonur og ræddu um tónlistarskólann okkar.
Blásarasveitirnar voru í brennidepli, en þær áttu tilbúin lög, og gátu brugðist við skjótt þegar sjónvarpið bauð okkur að koma. En einnig töluðu stelpurnar um skólann almennt í þættinum og hinn mikla dugnað allra nemenda og fjör í öllum deildum. Við viljum því tileinka öllum nemendum okkar innslagið, og óska ykkur til hamingju með tónlistarskóladaginn!
Í framhaldinu munum við finna upp á fleiru til að marka þennan ágæta dag.