Fara í efni

Árspróf!

Árspróf!

Vikuna 11.-16. apríl fara fram árleg próf í Tónlistarskólanum á Akureyri sem kallast árspróf. Prófin eru mjög svipuð áfangaprófum í grunn- mið- og framhaldsstigi og eiga að undirbúa nemendur og gera þeim grein fyrir hvernig áfangapróf fara fram. Sökum þessarra prófa falla niður allar hljómsveitaræfingar sem og einkatímar í þessari viku sem og tími í Skapandi tónlistarmiðlun. Kennt verður þó í bóklegum áföngum, tónfræði, hljómfræði og tónlistarsögu.Einnig verða æfingar hjá byrjendasveit, grunnsveit og Big Band.