Fara í efni

Alexander Smári sigraði í EPTA keppninni

Alexander Smári sigraði í EPTA keppninni

Píanóleikarinn Alexander Smári Kristjánsson vann til 1. verðlauna í píanókeppni Epta sem haldin var í Salnum í Kópavogi dagana 7. til 11. nóvember. Alls voru 23 keppendur í hans flokki þ.e. flokki 14 ára og yngri.

Nú um helgina fór fram píanókeppni Epta í Salnum en Epta eru samtök evrópskra píanókennara. Keppt varr í þremur flokkum: 1. flokkur 14 ára og yngri, 2. flokkur 18 ára og yngi og 3. flokki 25. ára og yngri. Fulltrúi tónlistarskólans á Akureyri var hinn 14 ára gamli Alexander Smári Kristjánsson Edelstein sem keppti í fyrsta flokki en kennari hans er Þórarinn Stefánsson. Skemmst er frá því að segja að Alexander Smári sigraði í sínum flokki. Við óskum þeim Alexander og Þórarni innilega til hamingju með frábæran árangur.