Orgelævintýri í Akureyrarkirkju!
17.04.2024
Orgelævintýri í Akureyrarkirkju!
Vissuð þið að við tónlistarskólann okkar er hægt að læra á orgel?
Kennslustundir fara fram í Akureyrarkirkju - krakkar mega læra á stóra fína kirkjuorgelið!
Á sunnudaginn kl. 13 verður orgelkrakkahúllumhæ í kirkjunni. Orgelnemandi TónAk, ásamt félögum sínum frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar, leikur ævintýrið um konunginn í Haribo-landi á orgel, með hjálp sögumanna og kennaranna sinna. Annar sögumannanna er reyndar nemandi TónAk líka...
Krakkafjör við orgelið!
Liður í Barnamenningarhátíð á Akureyri!
Öll velkomin og aðgangur ókeypis!